Dionysus

3 views

Lyrics

Nafn mitt þig nagar og nærvera bítur
 Nóg er að hafa þegar þróttur þinn þrýtur
 Læðist þér aftan þegar löngunin syngur
 Lyppast þú niður og kraftur minn springur
 Grátur þinn gleður og grámyglan sæta
 Gleypti þig heilan og engin er glæta
 Ein er þó von einhver mun segja
 Er sóttin og uppgjöf en þú skalt nú þegja
 Bankað á dyr breystur þú opnar
 birtist í gættinni og logar þíkir slokkna
 Við stjónvölinn stendur og stefnir að landi
 Hönd þín og hugur eru á mínu valdi
 Fjölda ég felli með orðum og afli
 Ríf þig strax niður og ræð ég þig frá
 Leitandi ljós berum niður við gjá
 Þú ýfir mér burt þegar köllum þú heyrir
 Þá aftur ég kem með krafti ég keyri
 Fjölda ég felli með orðum og anda
 Fíknin er nafn mitt og starf er að granda
 Þú þekkir mig ekki þá oftar munt finna
 Siðasta hálmstráið ætíð mun vinna
 Nafn mitt þig nagar og nærvera bítur
 Nóg er að hafa þegar þróttur þinn þrýtur
 Læðist þér aftan þegar löngunin syngur
 Lyppast þú niður og kraftur minn springur

Audio Features

Song Details

Duration
05:30
Key
5
Tempo
136 BPM

Share

More Songs by Sólstafir

Albums by Sólstafir

Similar Songs