Fyrir Alla

6 views

Lyrics

Láttu ekki á þig fá, heimsins vandamál
 Lifðu í gleðinni
 Opnaðu þig upp, settu brosið upp
 Og lifðu lifandi
 Ást er að vera á hreyfingu
 Dans lætur alla gleyma um stund, gleyma stað og stund
 Fyrir kennaranemana
 Leigu bílsjóra og einstæða foreldra
 Já fyrir krakkana, málara
 Banka stjórana og alla sem dansa
 Leyfðu straumnum að fara um þig
 Opnaðu augun og sjáðu'allt fólkið
 Það eru allir jú einhvers virði
 Það er enginn of mikil byrði
 Stilltu útvarpið á æðra tíðnisvið
 Við erum lifandi
 Allt sem þú vilt sjá, allt sem þú villt fá
 Erum ósigrandi
 Ást er að vera á hreyfingu
 Dans lætur alla gleyma um stund, gleyma stað og stund
 Fyrir hjúkrunafræðinga
 Eldriborgara og lögreglumennina
 Fyrir prakkara, bakara
 Listamennina og alla á Hvammstanga
 Bros í hjartanu, bros á andlitinu
 Öll við getum tekið þátt
 Fyrir rappara, söngvara
 Stjörnukokkana og svartklædda unglinga
 Já, fyrir alla sem vilja, alla sem að elska
 Og fyrir alla sem að hlusta
 Leyfðu straumnum að fara um þig
 Opnaðu augun og sjáðu allt fólkið
 Það eru allir jú einhvers virði
 Það er enginn of mikil byrði
 

Audio Features

Song Details

Duration
03:02
Tempo
122 BPM

Share

More Songs by Cadem

Similar Songs