Mánadans

7 views

Lyrics

Fætur mínir skeika í skini silfurmána
 Sem bíður mér þögullar nætur.
 En lítil stúlka illa lætur og stígur villtan
 Vangadans við nóttina.
 Hratt hún dansar í hundrað hringi
 Meðan myrkrið magnast upp
 Í kringum hana og innra með henni
 Og henni líður betur.
 Hún veit hvað hún vill
 Og hún veit hvað hún getur.
 Hún gerir það mikið,
 Hún fer yfir strikið.
 Týnd í sýndarveruleika.
 Reika í óraunveruleika
 Og leik mér að því sem ekki er.
 Veik og sama hver, allir vilja bjarga mér
 Á meðan ég vil farga því sem er.
 Sólin sest og hún blotnar,
 Sólin rís og hún brotnar.
 Hún líkist ekki neinum í hundrað og einum,
 En á föstudögum trúlofast hún nóttinni.

Audio Features

Song Details

Duration
04:00
Key
7
Tempo
128 BPM

Share

More Songs by Kælan Mikla

Albums by Kælan Mikla

Similar Songs