Tvær stjörnur

Lyrics

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
 Og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
 En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
 Og leiði mig á endanum aftur til þín
 Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn
 Svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn
 Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
 Og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð
 Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
 Því ég sé það fyrst á rykinu hve langur timi er liðinn
 Og ég skrifa þar eitthvað með fingrunum sem skiptir öllu máli
 Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli
 Já og andlitið þitt málað hve ég man það alltaf skýrt
 Augnlínur og bleikar varir brosið svo hýrt
 Jú ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best
 En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst
 Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
 Og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér
 Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
 En ég sakna þín mest á nóttunni er svipirnir fara á stjá
 Svo lít ég upp og ég sé við erum saman þarna tvær
 Stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær
 Ég man þig þegar augun mín eru opin hverja stund
 En þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund

Audio Features

Song Details

Duration
03:04
Key
2
Tempo
76 BPM

Share

More Songs by Megas

Similar Songs