Midgarðsormur - Live

2 views

Lyrics

Sjórinn rauður sýður.
 Í sortanum hann bíður.
 Dagrenning og dauðastormur,
 í djúpinu er Miðgarðsormur.
 Gakktu út á gróinn núp,
 Gáðu hvað mun prýða undirdjúp.
 Þarna yfir sjó og sand
 Sérðu áfram líða Jörmundgand.
 Mæli ég því mikill er,
 Miðgarðsormur þræðir lönd og sker.
 Hann sem mig skal hitta vill
 Hörfa þegar blæðir, kjarklítill.
 Renni ég færinu í fyrsta sinni,
 Festi við þóftu í kænu minni.
 Annað sinn kasta, hann ekki bítur,
 ósnertri beitunni loks upp skýtur.
 Höfuð nautsins Himinhrjóðs
 Hilmar ormi færir, ei til góðs.
 Bannvænn sýnist bitinn þó
 Blóðið Gandsins ærir hugarró.
 Fylgja mun þér fegurð, ef
 Fellir orminn langa, sérhvert skref.
 Eiturgusa æta má
 ásjónu og vanga, tapi sá.
 Þriðja sinn kasta og þá hann tekur,
 þóftuna mölvar og bátinn skekur.
 Færið skal dregið af fullum krafti,
 Fátækleg hönd móti ormsins kjafti.
 Reipið sker, gatar glófa.
 Gegnum fer, særir lófa.
 Krókur í kjaftinn rífur,
 Krækjan því sker sem hnífur.
 Áfram þeir berjast báðir,
 Bræður tveir, þreyttir, þjáðir.
 Takast á, tíminn líður,
 Tengir þá strengum stríður.
 Höfuðið birtist í hafsins róti,
 Heggur í bátinn og streitist á móti.
 Blaðinu sting svo að blóð út stekkur,
 Bölvandi skepnan í hafrótið sekkur.
 Þegar hitti Þór
 þá munum við berjast.
 Staðfastur og stór
 Standa mun og verjast.
 Agnið beit víst á,
 Ásgarður mig svíkur.
 Jörmundgandur, já,
 ég er sá sem víkur.
 Báru klýfru bátur
 Og bátsmaður er kátur.
 Landið tekur, fleyið festir,
 þar fljúga yfir nokkrir þrestir.
 Aftru skepnan skríður
 í skjól og þar hann bíður.
 Létti til og lægði storminn
 Er lagði Hilmar Miðgarðsorminn.

Audio Features

Song Details

Duration
05:24
Key
11
Tempo
117 BPM

Share

More Songs by Skálmöld

Albums by Skálmöld

Similar Songs