Guð er kona

3 views

Lyrics

Lítil stelpa sagði við mig, sjáðu skýin þarna
 sjáðu þetta þykka hvíta, þar er hópur barna.
 Þegar ég verð gömul og geng bogin svona
 mun Guð á himnum taka mig og Guð hún er kona.
 Gamall maður sagði við mig sumarið er búið.
 Hjarta mitt er ansi þreytt orðið frekar lúið.
 Að ég deyi í svefni vinur það ég vona.
 Og vakni upp og sjái að Guð minn er kona.
 Ástfangna konan sagði sjáðu hann er fagur
 ég sef við brjóst hans uns að nýju rís dagur.
 Ég óska mér að dagar okkar verði alltaf svona
 og eitt máttu vita, ég veit að Guð er kona.
 Lítil stelpa sagði við mig sjáðu skýin þarna
 sjáðu þetta þykka hvíta þar er hópur barna.
 Þegar ég verð gömul og geng bogin svona
 mun Guð á himnum taka mig og Guð hún er kona.
 

Audio Features

Song Details

Duration
03:19
Key
7
Tempo
102 BPM

Share

More Songs by Bubbi Morthens

Similar Songs