Vonin blíð
3
views
Lyrics
Þegar nóttin fellur af himnum og allt er orðið hljótt er einhverstaðar ljós að fæðast lítið og mjótt og í myrkrinu þú talar við Maríu um sorg höfuð þitt er svartur fugl og hjartað er tóm borg. Ástin er eins og hafið djúp dökk og blá þó þú rýnir heila ævi nærðu botninn aldrei að sjá og þarna lengst niðri liggur þín gamla ást og hinna sem sigla miðin stefnulaust og þjást. Vonin vonin vonin blíð vertu mér hjá vertu hjá mér þegar ég sofna þegar ég fer á stjá vonin vonin vonin blíð vertu mér hjá vertu hjá mér þegar ég sofna þegar ég fer á stjá. Á rökkurmiðum ástarinnar er þokan þétt og grá og þokan kæfir öll þín hljóð sem falla vörum frá þú rýnir út í sortann er eitthvað þar að sjá ekkert nema vofuhjörtu full af heitri þrá. Ég vildi að þú værir stelpan mín líkt og forðum var að enginn maður kyssti þig á mjúkar varirnar og ég veit hvað þú hræðist þitt hjarta allra mest þú hvíslaðir ég man þú kysstir manna best.
Audio Features
Song Details
- Duration
- 03:45
- Key
- 6
- Tempo
- 130 BPM