Engin miskunn

3 views

Lyrics

Nú vofir yfir mesti hryllingur
 Líkt og svört stormský við sjónarrönd
 óhugnanlega svífandi nær og nær
 á miskunnarlausum himninum.
 Hlaupið bara eins og fætur toga!
 Það er vonlaust að reyna að flýja, það er orðið um seinan...
 Við kynnum nú nýja hugmynd
 Um hrylling og taumlausan ótta
 Svo íþyngjandi og óumflýjanlega
 Sem mara á hrærðu hjarta.
 Þið hafið enga hugmynd um þá skelfingu
 Sem Helvíti raunverulega er!
 Með eld í hjarta og heift í huga
 Vér mótmælum og eitrum og skaða mestan veitum.
 Hersing vor knáa fjölskrúðug og framsækin
 Ryður þessa braut og rústir eftir skilur.
 Engin fórn er of mikil
 í okkar blóðskotnu augum
 því okkar er valdið
 Og ykkar er fallið.
 Valdi okkar beitum
 án þess að blikka auga.
 Vor fjölda-aftaka mikla
 Skal gjörast fyrir allra manna augum.
 Hreytum og hrækjum!
 Og svívirðum falska kónga!
 Brennum og brjótum
 öll stórveldi í okkar vegi!
 Við höfnum og verjumst!
 Og berjumst af offorsi!
 Herjum á hetjur
 Og allt sem þær standa fyrir!
 Hreytum og hrækjum!
 Og svívirðum slæga aumingja!
 Brennum og brjótum
 öll stórveldi í okkar vegi!
 Við höfnum og verjumst!
 Og berjumst með ofbeldi!
 Herjum á væsklana
 Og allt sem þeir standa fyrir!
 Steytum krepptum hnefum, sperrtir og hertir
 Kjálkar læstir, tilbúnir í stríð.
 Við herjumst af æði
 Og öskrum svo hástöfum
 Að raddir bresta
 Og skerast í fjarska.
 Slítum hálsa óvinanna
 Og hæðumst að þeim til sólarrásar.
 Engin miskunn, aldrei aftur
 Fyrir þá sem hyggjast svíkja og kúga.
 

Audio Features

Song Details

Duration
08:20
Key
7
Tempo
96 BPM

Share

More Songs by Misþyrming

Similar Songs