Engin vorkunn

3 views

Lyrics

Reiðin brennur sem bál
 og hatrið ristir sem rýtingur
 Grimmdin lokar leiðum og slekkur ljós
 Hégóminn hylur tómið, og tómið er honum allt
 Djöfullinn er kænsti kappi á flekkóttum vígvelli
 skýtur sér undan spjótum - en verður aldrei drottnari
 Með bitlausum en tignarlegum rýtingi ógnar
 og fleytir sér áfram í drullusvaðinu djúpa
 Gull og steinar, og öll önnur djásn
 munu aldrei hylja fnykinn!
 Svik slíta hjörtu
 og harm ber að trú
 Af þessum myrka vegi sem valinn var
 verður ekki aftur snúið
 Ljósið veitir ofbirtu, og augun snúa undan
 Eigi er hægt að kunngjöra það sem eigi sést
 Á konungsríkið mun reyna þegar storm ber að ströndum
 þegar allt þurrkast upp og pytturinn eftir stendur
 hver leiðin lokast, allar koll af kolli
 hönd sem aðra leiddi
 hrifsar svo með sér
 beint ofan í svaðið
 

Audio Features

Song Details

Duration
07:12
Key
7
Tempo
125 BPM

Share

More Songs by Misþyrming

Similar Songs