Með hamri

2 views

Lyrics

Gullið þitt er nú gullið mitt,
 sá á fund sem hremmir
 og ofurliði eruð þið borin...
 Þitt er mitt - og svo skal það verða!
 Við berum elda að jörðum ykkar
 og konur ykkar svívirðum,
 sem og mæður og dætur.
 Feður fláum og syni hengjum.
 Heimar ykkar og híbýli að ösku verða
 í ljósum logum dýrðar okkar.
 Okkar erindi er margslungið
 og því skal framfylgt, af vargætni
 með ógn og kúgun eða dauðans verki,
 sama er okkur!
 Við mætum óvinum okkar - með hatri og andúð
 og valdi beitum - með hamri.
 Snaran fellur svo fallega - sem perlur á þinn háls.
 Þitt er mitt - og svo skal það verða!
 Heimar ykkar og híbýli að ösku verða
 í ljósum logum dýrðar okkar.
 Við sláum vopn ykkar öll úr höndum
 grimmir í fjandans ham.
 Fætur ykkar við höggvum af
 svo þið hlaupið ekki framar burtu.
 

Audio Features

Song Details

Duration
06:27
Key
7
Tempo
177 BPM

Share

More Songs by Misþyrming

Similar Songs