Ísland, Steingelda Krummaskuð

3 views

Lyrics

Grýttur, líflaus jarðvegurinn
 Svo langt sem augað eygir.
 Hér mun aldrei neitt þrífast
 Eða vaxa.
 Ógjöful en grimm
 Drottnar hér þurrðin
 Og við tekur dimm
 Eilíf nóttin.
 Líf færist um set
 Og ætlar að frjóvga jörðina
 En veikburða hörfar á brott
 Út í leiðarlausu langferðina.
 Hér mun aldrei neitt
 Þrífast eða vaxa.
 Hér mun aldrei neitt
 Lifa eða dafna.
 Ísland, steingelda krummaskuð...
 

Audio Features

Song Details

Duration
06:25
Key
2
Tempo
64 BPM

Share

More Songs by Misþyrming

Similar Songs